Hver Verð Ég Eftir Fimm Ár?

eftir 5 ár verð ég útskrifuð úr Menntaskóla og er á leið í Dýralæknaháskólann í Noregi og komin með bílpróf og vonandi kærasta. komin yfir þunglyndið og komin yfir hann(lesa síðustu færslu) ég verð grönn og flott og í formi. Já þetta er eiginlega það sem eg vil verða eftir fimm ár, en þú? Láttu mig vita í kommentum:) 

 

-Maríuerlan


Ástæðan Fyrir Að Ég Heiti Maríuerla

M5735280678_5ec566b325_zaríuerla, ef þið vissuð það ekki er fuglategund. mjög fallegur fugl. ég er með mjög sjaldgæfa fóbíu. fóbíu fyrir fuglum. sérstaklega kríum og mitt stærsta mottó er að komast yfir hræðslur og veikleika mína. svo heiti ég að hluta maría og þetta smelllpassaði bara, bara svona ef þið voruð að velta því fyrir ykkur. 

 -Maríuerlan 


Opið Bréf Til Hans

stærsti hluturinn í lífinu mínu er eitt sem gerðist fyrir 2 árum, ég varð ástfangin af strák sem er nokkrum árum eldri en ég. eg gat ekki einbeitt mér þegar ég var í kring um hann sem var oft. á hverjum virkum degi. og hef alltaf langað að tjá tillfinningar mínar til hans og ég ætla að skrifa opið bréf hérna til hans þó að eg viti að hann muni aldrei sjá það.

 

kæri Þú, ég er nokkuð viss um að þú vitir nokkurn veginn hvernig mér líður gagnvart þér. ef ekki þá skal ég orða það svona, ég er dauðlega frá toppi til táar, ástfangin af þér. ég veit það hljómar fáránlega en þannig eru hlutirnir. ég get ekki lýst tilfinningunni gagnvart þér, sársaukafyllri, óberandi tilfinningunni gagnvart þér. en hvað veit ég um ást? er nokkur leið að þetta sé ást? við töluðum rétt svo saman ekki um neitt sérstakt. en vá hvað það var gaman bara að horfa á þig, eins og fyrir offitusjúkling að horfa á kleinuhringi þegar hann er ekki búinn að borða í 2 mánuði. vissiru að einunnirnar mínar fóru niður útaf ég gat ekki einbeitt mér? og sársaukinn. að geta ekki fengið það sem ég vildi og að vita það sem ég vildi hafði engann áhuga á mér whatsoever. því þú áttir og átt enþþá gullfallega kærustu. ég man þegar þú sýndir mér mynd af henni í símanum þínum. hún og ég er eins og svart og hvítt. hún er falleg, pottþétt skemmtileg, fyndin og smokin líkama. en svo er það ég. afhverju í veröldinni ætti einhver að fara úr henni í mig? svo líka þú. þú er myndarlegur, hávaxinn og svo gullfallegur. þú ert himnaríki. og haha ég man þu varst alltaf að stríða mér eitthvað, pota í mig og ég man einusinni var ég að fara að fá mér vatn og þu komst og skvettur smá vatni í mig og mér brá svo mikið. vissiru að ég get ekki farið á böll útaf þú ert alltaf þar og ég bara meika það ekki að sjá þig. og ef ég sé þig þa´geri ég mitt best að horfa ekki á þig, það er of sársaukafullt. eins og ég naut þess að horfa alltaf á þig, svo þegar þú horfðir á mig tilbaka og ég kippti hausnum snöggt tilbaka til að reyna að láta það ekki sjást. og afhverju get ég ekki bara gleymt þér og haldið áfram, það er fáránlegt útaf við vorum aldrei einusinni saman. við vorum aldrei neitt. og svo er spurningin hvernig lítur þú á mig? ég giska mest á að þú horfir á mig eins og eitthverja litla aumkunaverða stelpu sem er skotin í þér, það er pottþét það. en vá hvað það yrði geðveikt ef svo væri ekki. ég leyfi mér ekki einusinni að ímynda mér það. en hvenær endar þetta? hvenær endar þessi sársauki? hvenær kemst ég yfir það? hvenær kemst ég yfir þig?

 -Maríuerlan 


Velkomin

Velkomin á nýju síðuna mína! ég hef endalaust verið að spá í að stofna blogg en aldrei gertþað, en ákvað að gera það núna :) ástæðan fyrir spurningarmerkinu er útaf ég veit ekki hvort það er eitthver að lesa þetta hehe. en ef þú ert að því þá ekki hætta að lesa!;) ég er ekki 100% viss hvernig blogg þetta verður en er með ákveðna hugmynd og það kemur allt í ljós. en þið skulið vita að þetta verður ekki eitthvað hundleiðinlegt sem enginn vil lesa en allir vilja skrifa um. þetta verður ekki dagsfærsla um það óathyglisverðu hlutina sem ég geri. ein sog t.d "í dag fór ég í skólann og borðaði grjónagraut, svo missti eg blýantinn minn á gólfið í stærfræði tíma svo fór ég heim svo að sofa" NEI þettta veður ekki svona og ef þú ert með svona blogg þá sorry en það nennir bara alls enginn að lesa þetta, ég vil skrifa um það sem ÉG myndi vilja lesa um. það getur verið misjaft. en það verður ekki þannig að einn dagin ner eg að skrifa um kartöflur svo næsta dag er eg að skrifa um stríð í írlandi, neinei það verður alls ekki þannig hehe. en ég ætla samt að segja ykkur grundvallarhlutina um mig. ég vil samt ekki segja ykkur hver ég er, allavega ekki strax.

eg er eldri en 14 en yngri en 21. á afmæli í desember.
ég er með minniháttar þunglyndi sem er mjög erftitt að tala um útaf það er ógeðslega erftitt að vita ekki afhverju manni líður illa.
ég vinn í bakaríi um helgar.
ég er háð hungurleika-þrýleiknum(bókunum og myndunum)
hlusta mest á Lana Del Rey. næ að tengjast tónlistinni hennar mest.
ég á son sem er 4ára hundur. hann er mér allt.
bý á suðurlandi(mesta sem eg er tilbúin að segja)

takk fyrir að lesa og mun setja fyrsta "alvuru" póstinn minn upp í dag ;)

-Maríuerlan


Um bloggið

Maríuerlan

Höfundur

Maríuperlan
Maríuperlan
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 5735280678 5ec566b325 z
  • 5735280678 5ec566b325 z

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband